Gullsmiðir taka þátt í leiðsögn um sýninguna Rætur

Gullsmiðirnir Erling Jóhannesson og Þorbergur Halldórsson taka þátt í leiðsögn um Rætur, sýningu á íslenskri samtímaskartgripahönnun, laugardaginn 7.apríl kl. 15.

Erling og Þorbergur námu báðir gullsmíði við Iðnskólann í Reykjavík og skartgripahönnun við Scuola Lorenso de Medici á Ítalíu. Þorbergur er einnig útskrifaður frá Gullsmíðaháskólanum í Kaupmannahöfn en Erling hefur sótt ýmis framhaldsnámskeið við Institut for Ædelmetal í Kaupmannahöfn. Þorbergur hefur um árabil rekið eigið gullsmíðaverkstæði, G 15 og hefur kennt gullsmíði við Hönnunar- og handverksskólann frá 2007.

Erling hefur að mestu starfað sjálfstætt við gullsmíðar en samhliða gullsmíðinni hefur hann starfað sem leikari og leikstjóri frá 1990. Hann hefur þó unnið tímabundið á gullsmíðaverkstæðum s.s. G 15 í Reykjavík og hjá Georg Jensen í Danmörku. Sýningin Rætur gefur innsýn í heim íslenskrar skartgripahönnunar og þær ólíku rætur sem gullsmiðir og skartgripahönnuðir leita í varðandi hugmyndir, efnisval og aðferðir.

Á sýningunni eru 26 höfundar og flestir gripanna eru sérstaklega unnir fyrir hana. Höfundarnir nota fjölbreytt efni, allt frá dýrum málmum og gimsteinum til timburs og mosa. Þannig endurspeglar sýningin mikla grósku á þessu sviði hér á landi og vísar jafnt til náttúrunnar sem og menningarlegra eða persónulegra róta höfunda.

Sýningin er unnin í samstarfi við Félag Íslenskra Gullsmiða og er hluti af HönnunarMars 2012.

Hægt er að lesa nánar um sýninguna á www.hafnarborg.is 

Hafnarborg verður opin alla páskahátíðina að undanskildum páskadegi. Föstudaginn langa, laugardag og annan í páskum er opið frá kl. 12-17 en á skírdag verður opið frá kl. 12-21.

  • 7.4.2012 15:00