Gleðilegt sumar - Sumardagurinn fyrsti

Sumardagurinn fyrsti hefur alltaf haft sérstaka merkingu í hugum Íslendinga enda mikið fagnaðarefni þegar sól tekur að hækka á lofti. Þá er tilvalið að koma saman og fagna sumarkomu. Hafnarfjarðarbær í samstarfi við skátafélagið Hraunbúa býður bæjarbúum og gestum uppá fjöruga og fjölskyldumiðaða dagskrá þar sem flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Dagskrá

11:00 Víðavangshlaup Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni. Keppt er í 7 aldursflokkum frá 6 ára og yngri,  uppí 21 árs og eldri hjá hvoru kyni. Allir keppendur fá verðlaunapeninga og sigurvegarar flokka fá bikara.

13:00 Skátamessa. 13:45 Skrúðganga frá Hafnarfjarðarkirkju niður á Thorsplan, í miðbæ Hafnarfjarðar.

14:00-16:00 Fjölskyldudagskrá á Thorsplani í umsjá Hraunbúa.

  • 19.4.2012