Námsflokkar Hafnarfjarðar - Miðstöð símenntunar

MenntasetridvidLaekinn_01
Miðstöð símenntunar
Menntasetrinu við Lækinn
sími: 585-5860
netfang: nhms@hafnarfjordur.is

Námsflokkar Hafnarfjarðar-Miðstöð símenntunar hafa starfað frá árinu 1971 og er miðstöð fullorðinsfræðslu á vegum Hafnarfjarðarkaupstaðar.

Markmið Námsflokkanna allt frá stofnun þeirra hefur verið að gefa almenningi tækifæri til að efla grunnmenntun sína og stuðla að aukinni þátttöku fólks í námi og hagnýtri fræðslu. Einnig hefur verið lögð rík áhersla á að efla tengsl við aðra skóla í Hafnarfirði, styðja við það nám sem þar fer fram og æskilegt hefur þótt á hverjum tíma, jafnframt því sem ávallt hefur verið leitast við að verða við óskum einstaklinga og hópa um áhugaverð fræðslu- og kynningarnámskeið.

Miðstöð símenntunar heldur úti eigin vef: www.nhms.is