Viðburðir í leikskólum

Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar stendur fyrir ýmsum viðburðum sem eru sameiginlegir fyrir leikskólana í Hafnarfirði, ýmist eitt eða í samstarfi við aðra. Markmið þeirra er að efla skólastarf leikskólanna og auka fjölbreytni þess fyrir nemendur og starfsfólk skólanna. Nánari upplýsingar um einstaka viðburði má fá í leikskólum bæjarins eða á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.

Syngjandi jól

Syngjandi jól

er kórahátíð í Hafnarfirði sem haldin er á aðventu í Hafnarborg fyrsta laugardag í desember frá árinu 1997. Þar koma fram kórar sem starfa í Hafnarfirði, úr leik- og grunnskólum, kirkjum og sjálfstætt starfandi kórar. Syngjandi jól eru samstarfsverkefni Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og menningar- og ferðamálaskrifstofu Hafnarfjarðar.