Umsóknir um leikskóla

Sækja má um leikskólavist fyrir barn um leið og kennitala þess hefur verið skráð í þjóðskrá. Hægt er að sækja um fleiri en einn leikskóla. Mögulegt er að kaupa daglegan dvalartíma í leikskóla frá fjórum til níu klukkutímum en þá ávallt á sama tíma alla vikudaga innan opnunartíma leikskólans.

Hér má sækja um leikskólavist.

Úthlutun leikskólavistar

Allir foreldrar, óháð búsetu, hafa rétt til að sækja um leikskólavist í leikskólum Hafnarfjarðar. Börn geta hafið leikskólagöngu á árinu sem þau verða tveggja ára. Undantekning frá þessari reglur eru börn sem falla undir skilgreiningu um forgang. Forsenda úthlutunar leikskólavistar er að barn eigi lögheimili í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær áskilur sér rétt til að innrita börn í leikskóla eftir aldri (Lög um leikskóla nr. 90/2008, 26. gr.).

Aðalúthlutun leikskólavistar fer fram í apríl/ maí ár hvert vegna leikskólarýma sem losna þegar börn hætta vegna aldurs.  Aðrar úthlutanir fara fram jöfnum höndum allt árið,  þegar leikskólarými losna vegna flutninga eða annarra ástæðna. Foreldra fá tilkynningar um leikskólavist sendar í rafpósti.

Þegar barni hefur verið úthlutað leikskólarými fær foreldri/ forráðamaður bréf í tölvupósti þar sem farið er fram á að foreldri/ forráðamaður staðfesti boðið um leikskólavistina hjá leikskólastjóra. Þróunarfulltrúi leikskóla er ábyrgðarmaður úthlutunar leikskólavistar. Ef staðfesting hefur ekki borist innan 10 virkra daga er litið svo á að tilboðinu sé hafnað. Innritun er alfarið í höndum leikskólastjóra því aðstæður í hverjum leikskóla fyrir sig ráða því hvenær leikskólaganga getur hafist. Þegar tilboð um leikskólavist er staðfest kynnir leikskólastjóri foreldri/ forráðamanni ferli innritunar í leikskólann.

Forgangur í leikskóla

Hafnafjarðarbær áskilur  sér rétt til að forgangsraða börnum í leikskóla þegar taka þarf tillit til aðstæðna barna og foreldra og eða til aðstæðna í leikskólum sveitarfélagsins (Lög um leikskóla nr. 90/2008, IX. kafli 26. gr.). Til að barn geti fallið undir skilgreiningu um forgang þarf að skila vottorði frá viðurkenndum greiningaraðilum:

  • Vegna fatlaðra barna (vottorð frá viðurkenndum greiningaraðila skal fylgja umsókn).
  • Vegna barna með þroskafrávik (vottorð frá viðurkenndum greiningaraðila skal fylgja umsókn).
  • Vegna barna sem búa við erfiðleika í félagsumhverfi – barnaverndarmál (vottorð frá félagsmálayfirvöldum skal fylgja umsókn).
  • Vegna alvarlegra veikinda eða fötlunar innan fjölskyldu barnsins (vottorð frá lækni eða öðrum opinberum aðilum skal fylgja umsókn).

Annar forgangur:

  •  Börn  foreldra undir lögaldri (18 ára).
  •  Þríburar.
  • Börn starfsmanna í leikskólum Hafnarfjarðar.

Þjónusta leikskóla í Hafnarfirði

Daglegur opnunartími er frá kl 07:30-17:00. Hægt er að kaupa daglegan dvalartíma í leikskóla frá fjórum til níu klukkutímum en þá ávallt á sama tíma alla vikudaga innan opnunartíma leikskólans.

Leikskólar í Hafnarfirði loka vegna sumarleyfa í 4-5 vikur á sumri. Lokunin er kynnt foreldrum með fyrirvara.

Leikskólarnir eru lokaðir í fimm daga á hverju skólaári vegna skipulagsvinnu. Lokunardagarnir eru þeir sömu og í grunnskólum Hafnarfjarðarbæjar en einstaka skólar geta fengið breytingu á þeim til að sækja sérhæfða sí- og endurmenntun. Ef breytingar eru samþykktar eru þær kynntar á heimasíðu viðkomandi skóla.

Álitamál

Komi upp álitamál varðandi þjónustu leikskóla, innritun leikskólabarna eða annarra leikskólamálefna er þeim vísað til  þróunarfulltrúa leikskóla á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.