Sérfræðiþjónusta leikskóla

Með sérfræðiþjónustu leikskóla er átt við skipulag, vinnubrögð og verkefni starfsfólks sem sinnir ýmsum sérfræðiverkefnum innan leikskólastarfsins og starfar bæði í einstökum skólum og hjá fræðsluþjónustu Hafnarfjarðar.

Hlutverk sérfræðiþjónustu leikskóla er að styðja við nám allra barna. Verkefni sérfræðiþjónustu snúa bæði að börnum og starfsfólki og byggja á ákvæðum reglugerðar nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga og fleiri reglugerðum sem tengjast lögum um leikskóla frá árinu 2008. 

Nemendavernd

Það er verkefni skólakerfisins að vinna að því að börnum líði vel í skóla og að þau séu örugg þar. Starfsfólk leikskóla fylgist með líðan nemenda og jafnframt hvort vísbendingar séu um vanlíðan sem eiga sér orsök utan skólans. Samráðsteymi er þá vettvangur innan hvers leikskóla til að vinna að hagsmunum barna, vernd og öryggi í leikskólaskólastarfi sbr. reglugerð nr. 584/2010. Frá hendi sérfræðiþjónustu sveitarfélags fyrir leikskóla er þróunarfulltrúi sérstakur tengiliður á Skólaskrifstofu.

Forvarnir

Forvarnir eru viðfangsefni sem nauðsynleg eru  til að vernda börn gegn ógn og hættum af öllu tagi. Í leikskólum fer fram margvísleg fræðsla og áætlanagerð um forvarnir. Nánari upplýsingar um slíkt má fá hjá hverjum leikskóla, t.d. í skólanámskrám, starfsáætlunum og á heimasíðum. Sérstakur samstarfsaðili í forvörnum í skólakerfinu er forvarnafulltrúi Hafnarfjarðar.

Sérkennsla

Börn í leikskóla er veittur stuðningur/sérkennsla í samræmi við lög um leikskóla frá 2008 og reglugerð um sérfræðiþjónustu í leikskólum nr. 584/2010. Mat á þörf fyrir stuðningi hverju sinni er gert á grundvelli greininga og/eða mats frá sérfræðiþjónustu leikskóla á Skólaskrifstofunni. Sérfræðiþjónustan úthlutar sérkennslutímum til skóla en hver leikskóli skipuleggur og ákveður framkvæmd sérkennslu við einstök börn í samráði við sérkennslufulltrúa.  Eftirfylgd og mat á árangri sérkennslu er í höndum sérfræðiþjónustu leikskóla.  Ráðgjöf og eftirfylgd  er veitt vegna sérkennslu til starfsmanna leikskóla og foreldra leikskólabarna.  Tengiliður er sérkennslufulltrúi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.

Sálfræðiþjónusta

Sálfræðingur leikskóla gerir athuganir á leikskólabörnum og veitir starfsfólk leikskóla og foreldrum ráðgjöf. Beiðnir um sálfræðiþjónustu þurfa að berast á þar til gerðum eyðublöðum, sem útfyllt eru í samstarfi foreldra og starfsfólk leikskólans.  Samþykki foreldra fyrri beiðni þarf ætíð að liggja fyrir. Tengiliður sálfræðiþjónustu er yfirsálfræðingur á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.

Talmeinaþjónusta

Börn í leikskóla með framburðarfrávik og/eða hljóðkerfisröskun er veitt sérkennsla samanber lög um leikskóla frá 2008 og reglugerð um sérfræðiþjónustu í leikskólum nr. 584/2010. Mat á þörf fyrir sérkennslu vegna málþroskafrávika eru gerð á grundvelli greininga og/eða mats talmeinafræðings að beiðni stjórnenda leikskóla með samþykki foreldris/ forráðamanns.  Sérfræðiþjónusta leikskóla úthlutar sérkennslutímum til talmeinaþjónustu en hver leikskóli skipuleggur og ákveður framkvæmd málörvunar við einstök börn í samráði  við talmeinafræðing.  Eftirfylgd og mat á árangri sérkennslu í  máluppeldi  er í höndum sérfræðiþjónustu leikskóla.  Ráðgjöf og eftirfylgd  um kennslu barna með málraskanir er veitt til starfsmanna leikskóla og foreldra leikskólabarna. Tengiliður er talmeinafræðingur  á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.

Uppeldisráðgjöf - PMT-foreldrafærni

PMT-FORELDRAFÆRNI innleiðir aðferðina Parent Management Training – Oregon aðferðina  (PMTO) á Íslandi. Innleiðing PMTO aðferðarinnar stuðlar að jákvæðri aðlögun barna með hegðunarfrávik og dregur úr hegðunarvanda.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu einingarinnar: http://www.pmt-foreldrafaerni.is/