Almennar upplýsingar um grunnskóla


Grunnskólar Hafnarfjarðar eru ætlaðir öllum börnum á aldrinum 6-16 ára sem eiga lögheimili í Hafnarfirði. Grunnskólar starfa eftir lögum um grunnskóla frá árinu 2008 og reglugerðum sem þeim fylgja.

Grunnskólar eru ætlaðir öllum börnum á skólaskyldualdri óháð námsgetu, félagsstöðu, trúar- og lífsskoðunum, kyni eða fötlun. Sömuleiðis ríkir mikil upplýsingaskylda milli skóla og heimilis í því að þar á milli berist nauðsynlegar upplýsingar og nám og aðra mikilvæga þætti sem geta haft áhrif á nám barna sbr. reglugerðir nr. 897/2009 og milli leik- og grunnskóla sbr. reglugerð nr. 896/2009.

Grunnskólarnir í bænum

Átta grunnskólar eru starfræktir í bænum, sjö af bæjarfélaginu og einn, Barnaskóli Hjallastefnunnar, er sjálfstætt rekinn grunnskóli. Frekari upplýsingar um starfsemi einstakra skóla má finna á skólavefjum viðkomandi skóla. Þessi skólar eru:

MenningAsland2012_02Þessi skólar eru:

Áslandsskóli  

Kríuási 1, sími 585 4600
Vefsíða: http://www.aslandsskoli.is

Hraunvallaskóli  

v/Drekavelli, sími 590 2800
Vefsíða: http://www.hraunvallaskoli.is/

Hvaleyrarskóli   

Akurholti 1, sími 565 0200
Vefsíða: http://www.hvaleyrarskoli.is/ 

Lækjarskóli   

v/Sólvangsveg, sími 555 0585
Vefsíða: http://www.laekjarskoli.is/

Setbergsskóli  

v/Hlíðarberg, sími 565 1011
Vefsíða: http:// www.setbergsskoli.is

Víðistaðaskóli  

v/ Hrauntungu, sími 5955800
Vefsíða: http:// www.vidistadaskoli.is

Öldutúnsskóli  

v/Öldutún, sími 555 1546
Vefsíða: http://www.oldutunsskoli.is

Barnaskóli Hjallastefnunnar  

v/Hjallabraut, sími 555 7610
Vefsíða: http://www.hjalli.is/bsk7610/

Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar

Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar,  Linnetsstíg 3 (afgreiðsla á 4. hæð) er sviðsskrifstofa fræðsluþjónustu Hafnarfjarðar. Hún annast stjórnsýslumálefni fyrir grunnskólana auk þess að sinna margsvíslegum stuðningi og ráðgjöf til skólanna. Skólaskrifstofan annast einnig sölu á efni PMT-foreldrafærni og skriftarefni. Sjá nánar um skrifstofuna hér.