Dagforeldrar í Hafnarfirði
Dagforeldrar í Hafnarfirði eru sjálfstætt starfandi en fá starfsleyfi samkvæmt ákveðnum skilyrðum og eru háðir reglulegu eftirliti umsjónaraðila. Fjöldi barna hjá hverju dagforeldri má mest vera fimm börn samtímis. Undantekning er í hádegi milli kl. 12 og 13 en þá er heimilt að vera með allt að sjö börn. Ákvörðun um vistun barns í daggæslu er ætíð á ábyrgð foreldra.
Foreldrar hafa sjálfir samband við dagforeldra þegar leitað er eftir plássi fyrir barnið. Mælt er með að foreldrar tali við tvo eða fleiri dagforeldra áður en ákvörðun um vistun er tekin. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur gæslusamnings milli foreldra og dagforeldris er einn mánuður og skal uppsögn miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar. Fyrsti gæslumánuður er reynslutími
Dagforeldrar eru með eigin gjaldskrá og er þeim óheimilt að samræma gjaldskrá sína, þess vegna eru gjöld mishá frá einu dagforeldri til annars. Hafnarfjarðarbær greiðir niður daggæsluna samkvæmt ákveðnum reglum. Daggæslufulltrúi hefur umsjón og eftirlit með dagforeldrum. Ef upp kemur ágreiningur milli dagforeldris og foreldris má leita til daggæslufulltrúa með úrlausn.
Kynningarbæklingur um daggæslu.
Samningur um vistun barns hjá dagforeldri.
Samningur um vistun barns hjá öðrum en dagforeldri.
Niðurgreiðslur hjá dagforeldum (1.1. 2013).
Reglur um niðurgreiðslu hjá öðrum en dagforeldri.
Vistun breytt eða vistun lokið hjá dagforeldri.
Dagforeldrar í Hafnarfirði
síðast breytt: 3. febrúar 2013.
| Norðurbær | ||||
| Nöfn | Heimilisfang | Símanúmer | Vinnutími | |
| Sigríður Jónsdóttir | Blómvangur 3 | 555 3462 - 864 0157 | 7:30 - 16:15 | |
| Ráðhildur Guðrúnardóttir | Breiðvangur 11 | 565 9510 - 847 8175 | 7:30 - 16:30 | |
| Herdís Böðvarsdóttir | Hjallabraut 19 | 565 2891 - 869 6147 |
8:00 - 17:00 | |
| Ásdís Jóhannesdóttir | Hjallabraut 23 | 555 2257 - 845 3299 | 8:00 - 16:30 | |
| Inga Jóna Traustadóttir |
Sævangur 24 |
779 8977 |
7:30 - 16:15 |
|
| Miðbær | ||||
| Herdís Rúnarsdóttir |
Hraunstígur 5 |
555 0860 - 695 7288 |
7:45 - 16:15 |
|
| Hanna Dóra Halldórsdóttir | Álfaskeið 78 | 564 1635 - 840 0241 | 8:00 - 16:00 | |
| María Hjartardóttir | Erluhraun 6 | 565 5173 - 867 5859 | 7:30 - 16:15 | |
| Hansína G. Jónsdóttir |
Álfaskeið 100 |
555 1498 - 8473747 |
7:30 - 16:15 | |
| Vesturbær | ||||
| Elín María Magnúsdóttir | Hellisgata 15 | 565 2437 - 555 1145 | 7:30 - 16:00 | |
| Guðbjörg Viggósdóttir | Hellisgata 15 | 565 2437 | 7:30 - 14:00 | |
| Þórdís Böðvarsdóttir | Hellisgata 26 | 555 2806 | 7:45 - 16:15 | |
| Suðurbær | ||||
| Aðalheiður Runólfsdóttir | ||||
| formaður samtaka dagf. | Klausturhvammi 8 | 868 2876 | 8:00 - 16:00 | |
| Þóra Jónína Hjálmarsdóttir | Klausturhvammur 8 | 445 1867 - 777 9819 | 8:00 - 16:00 | |
| Sigríður Júlíusdóttir | Ölduslóð 30 | 568 3898 - 898 9838 | 7:45 - 16:15 | |
| Hulda Kristjánsdóttir | Ölduslóð 30 | 555 1852 - 844 1000 | 7:30 - 16:00 | |
| Dagbjört Bjarnadóttir | Stekkjarhvammur 56 | 555 1837 | 7:30 - 16:00 | |
| Jónína Rósa Ragnarsdóttir | Öldutún 20 | 846 4678 - 844 8751 | 8:00 - 16:00 | |
| Valgerður Árnadóttir | Öldutún 20 | 517 5777 | 8:00 - 16:00 | |
| Sigrún Einarsdóttir |
Smárahvammur 18 | 565 3053 - 894 2353 | 7:30 - 14:30/16:00 |
|
| Sólveig Sverrisdóttir |
Klausturhvammur 40 |
822 2871 |
7:30 - 16:15 |
|
| Þórunn Sigurðardóttir |
Klausturhvammur 40 |
893 9080 |
7:30 - 16:15 |
|
| Hvaleyrarholt | ||||
| Eyrún Árnadóttir |
Þúfubarð 1 |
565 1342 - 6617122 |
7:30-16.30 | |
| Jóhanna Eldborg | Suðurholt 5 | 555 1063 | 7:45 - 15:00 | |
| Ólöf Guðbrandsdóttir | Kelduhvammur 14 | 565 2136 - 691 2136 |
8:00 - 16:00 | |
| Kristín Bjarnadóttir |
Háholt 12 |
868 7796 |
7:30 - 16:15 |
|
| Pálmey Dögg Gylfadóttir |
Hólabraut 3 |
553 9453 / 847 0660 |
7:30 - 15:30 |
|
| Setbergshverfi | ||||
| Dagný Albertsdóttir | Klukkuberg 19 | 554 0604 - 698 6175 | 7:50 - 18:00 | |
| Elínborg Ragnarsdóttir | Fagrahlíð 5 | 555 0257 | 7:30 - 17:00 | |
| Unnur Sveinsdóttir |
Lindarberg 88 |
554 1755 - 861 4947 |
7:00-16:00 | |
| Áslandshverfi | ||||
| Heiðrún Björgvinsdóttir | Furuás 15 | 823 2473 | 7:45 - 16:15 | |
| Hildur Guðmundsdóttir | Erluás 16 | 552 5929 - 8627609 |
7:30 - 15:30/16:30 | |
| María Kristinsdóttir | Þrastarás 10 | 565 3031 - 694 8505 | 7:30 - 15:30 | |
| Guðrún Halla Hafsteinsdóttir | Þrastarás 4 | 564 2591 - 862 9090 | 7:30 - 14:00 | |
| Laufey Haraldsdóttir |
Blikaás 9 |
572 3474 - 663 6352 | 7:30 - 16:15 | |
| Guðbjörg Valdimarsdóttir | Kríuás 31 | 565 4885 - 693 4885 | 7:45 - 16:45 | |
| Þorgerður Hafsteinsdóttir | Fjóluás 2 | 565 2591 | 7:30 - 14:00 | |
| Jónína Bjarnadóttir |
Gauksás 31 |
564 1950 - 773 1210 |
7:45 - 16:15 |
|
| Eva Dís Björgvinsdóttir |
Furuás 17 |
565 8617 - 848 8617 |
7:45 - 16:15 |
|
| Elísa Björg Björgvinsdóttir |
Furuás 17 |
691 9927 |
7:45 - 16:15 |
|
| Vallarhverfi | ||||
| Hildur Gylfadóttir | Blómvellir 6 |
565 1974 - 899 1235 | 7:40 - 16:10 | |
| Hjördís Arnbjörnsdóttir | Drekavellir 36 | 565 8051 - 847 8051 | 7:45 - 16:15 | |
| Eyrún Gísladóttir | Drekavellir 36 | 695 1771 - 534 1771 | 7:45 - 16:15 | |
| Ellý Ósk Erlingsdóttir | Fléttuvellir 10 | 615 7141 - 445 5682 | 7:30 - 16:15 | |
| Steinþóra Þorsteinsdóttir | Furuvellir 32 | 565 0652 - 822 0652 | 7:30 - 16:00 | |
| Ásrún Halla Finnsdóttir |
Hafravellir 10 |
565 0249 - 863 0249 |
7:45-16:15 | |
| Bjarney Jóhannsdóttir |
Flettuvellir 13 |
562 7565 - 899 7565 |
8:00 - 16:30 |
|
| Heiðrún Ýr Reynisdóttir |
Kvistavellir 55 |
565 1104 - 899 7929 |
8:15 - 16:15 |
|
| Karítas Pétursdóttir |
Eskivellir 7 |
696 2487 |
7:45 - 16:15 |
Reglur um niðurgreiðslur til dagforeldra
Bæjarstjórn ákveður fjárhæð hverju sinni að fenginni tillögu fræðsluráðs. Samþykkt er að greiða mánaðarlega í ellefu mánuði á ári fjárhæð vegna dvalar barna úr Hafnarfirði hjá dagforeldri með eftirfarandi skilmálum:
1. Skilyrði fyrir greiðslu er að foreldri eigi lögheimili í Hafnarfirði og hafi lokið hámarks fæðingarorlofi. Greiðslur hefjast í næsta mánuði eftir að barnið hefur náð 9 mánaða aldri. Greiðslur vegna barna einstæðra foreldra hefjast í mánuðinum eftir að barnið er orðið 6 mánaða.
2. Foreldrar sækja um almenna niðurgreiðslu með því að fylla út samning um vistun barns hjá dagforeldri. Niðurgreiðslan fer til dagforeldra samkvæmt gjaldskrá fræðsluþjónustu.
3. Tekjulágir foreldrar geta sótt um viðbótar niðurgreiðslu sem er annars vegar 40% viðbótarniðurgreiðsla og hins vegar 20%. Tekjuviðmið og upphæðir niðurgreiðslu eru samkvæmt gjaldskrá fræðsluþjónustu. Leggja skal fram staðfest skattframtal síðasta árs. Ef aðstæður hafa breyst á tímabilinu skal skila inn öllum upplýsingum um tekjur síðustu 3 mánaða. Auknar niðurgreiðslur eru ekki greiddar fyrr en fullnægjandi gögn liggja fyrir og eru ekki afturvirkar. Foreldrar sækja um viðbótarniðurgreiðsluna í gegnum mínar síður á www.hafnarfjordur.is.
4. Hafnarfjarðarbær veitir 100% afslátt af dvalargjaldi með öðru barni, ef um systkini yngri en 2ja ára er að ræða í daggæslu. Systkinaafsláttur vegna barna eldri en 2ja ára reiknast 30% fyrir annað systkini, 60% fyrir þriðja systkini og 100% fyrir fjórða systkini.
5. Foreldrar fá afslátt af dvalargjaldi leikskóla ef þeir eru með börn samtímis í leikskóla, gegn því að framvísa til leikskólastjóra niðurgreiðslukvittun frá fræðsluþjónustu.
6. Sérstök niðurgreiðsla er greidd vegna barna eldri en 2 ára. Dagforeldri getur að hámarki innheimt vistunargjald hjá foreldrum skv. gildandi gjaldskrá og samningi. Greiðslur hefjast í næsta mánuði eftir að barnið hefur náð 2 ára aldri. Upphæðir eru óháðar tekjum.
7. Dagforeldrum er heimilt að taka leyfi frá daggæslunni allt að tveimur dögum á ári sem nýtast til endur og símenntunar án þess að niðurgreiðsla skerðist. Sama gildir óski dagforeldri í fullri samvinnu við foreldra að taka allt að 3 daga frí á ári. Dagforeldri ber að draga vistunargjald foreldra frá en greiðslur frá Hafnarfjarðarbæ vegna þessa daga skerðast ekki. Loki dagforeldri umfram framangreint lækkar niðurgreiðsla hlutfallslega.
8. Dagforeldri ber að tilkynna foreldrum og daggæslufulltrúa um lokun umfram framangreinda daga eigi síðar en 20. dags mánaðar áður en leyfi hefst þannig að til lækkunar niðurgreiðslu komi í þeim mánuði er umframlokun á sér stað.
9. Niðurgreiðsla fellur ekki niður vegna veikinda dagforeldris í allt að 10 daga á almanaksárinu.
10. Gera skal þríhliða vistunarsamning staðfestan af foreldri, dagforeldri og daggæslufulltrúa Hafnarfjarðarbæjar. Fyrsti mánuður er reynslumánuður beggja aðila. Ákveði foreldri eða dagforeldri að barn hætti í daggæslu innan fyrsta mánaðarins er fyrirvaralaus uppsögn heimil.
11. Þegar barn hefur verið lengur en mánuð hjá dagforeldri er uppsögn samnings með eins mánaðar fyrirvara af hálfu hvors aðila og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar á þar til gerðu eyðublaði.
12. Sé um fyrirvaralausa uppsögn að ræða á samningnum af hálfu dagforeldris, skal forráðamaður fá endurgreitt fyrir það sem greitt hefur verið fyrirfram.
13. Niðurgreiðslur eru greiddar út fyrirfram fyrsta virka dag hvers mánaðar. Vistunarsamningum skal skilað til daggæslufulltrúa eigi síðar en 20. dags næsta mánaðar á undan.
14. Ef dagforeldri fær ofgreidda niðurgreiðslu af einhverjum ástæðum mun fræðsluþjónustan lækka niðurgreiðslu til dagforeldris við næstu greiðslu sem því nemur eða krefjast endurgreiðslu.
Reglur þessar voru samþykktar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 19. desember 2011 og gilda frá 1. janúar 2012.
