Sorphirða

Öll umgengni um sorpið og frágangur skiptir miklu máli. Mikilvægt er að gengið sé frá öllu sorpi í lokaða poka(höldupoka) og hnýtt fyrir. Þetta kemur í veg fyrir óþrifnað og óþægindi. 

Spilliefni, málmar, timbur og aðrir stórir og þungir hlutir sem skemmt geta tækjabúnað mega ekki fara í sorpið en eiga að fara á gámastöðvar. Nánar á http://www.sorpa.is/

Sorp er fjarlægt á 10 daga fresti og hægt er að sækja um aukatunnu ef þörf krefur.

Sendið okkur ábendingu ef vandamál koma upp vegna sorphirðu.

Sorphirðudagatal maí til ágúst 2013