Vinnuskólinn
Sumarið 2013 fá 14 – 16 ára unglingar vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar, þ.e. unglingar fæddir árin 1997 – 1999.
Skrifstofa vinnuskólans er í gamla hjálparsveitahúsinu að Hrauntungu 5. Skrifstofan er opin frá kl. 9.00 til 16.00 nema frá 11. júní til loka júlí en þá er opið frá kl. 8:00 til 16.30.
Sími vinnuskólans er 565-1899
netfangið vinnuskoli@hafnarfjordur.is
Vinnutímabil
14, 15 og 16 ára unglingar (fæddir 1997-1999) hefja vinnu 11. júní og vinna til 18. Júlí.
Daglegur vinnutími
14, 15 og 16 ára unglingar vinna aðra hverja viku fyrir hádegi og eftir hádegi hina, mánudaga til fimmtudaga
Fyrir hádegi er unnið frá 9.00 – 12.00 og eftir hádegi frá 13.00 – 16.00.
Vinnustundir á viku eru því 12.
Laun
16 ára unglingar eru með 529,06 kr. á tímann og orlof þar ofan á. Þegar allt er talið geta unglingar á þessum aldri unnið sér inn tæplega 41.000 kr. yfir sumarið miðað við fulla mætingu. Mjög brýnt er að 16 ára unglingar skili inn skattkorti svo ekki verði tekinn af þeim skattur. Flokksstjórar munu minna unglingana á skattkortin fljótlega eftir að vinna hefst.
15 ára unglingar verða með 397,96 kr. á tímann og orlof þar ofan á. Miðað við fulla mætingu geta þau unnið sér inn tæplega 31.000 kr.
14 ára unglingar verða með 352,17 kr. á tímann og orlof þar ofan á. Miðað við fulla mætingu verða heildarlaun hjá þeim um 27.000 kr. Orlof (10,17%) er borgað út hjá öllum aldurshópum.
