Sundlaugar í Hafnarfirði

Í Hafnarfirði eru 3 almennings sundlaugar, sú elsta frá 1943, Sundhöllin við Herjólfsgötu en yngst er Ásvallalaugin sem var vígð 2008. Sundkennsla hófst hins vegar í Hafnarfirði 1909 og var í fyrstu kennt í sjónum út af Hamarskotsmöl en kennslan fluttist síðan vestur á Malir.

Sundhöll Hafnarfjarðar

Sundhöll Hafnarfjarðar var fyrsta sundlaugin í Hafnarfirði.   Í fyrstu var aðeins um útilaug að ræða við Krosseyrarmalir og var hún  tekin í notkun árið 1943.  Það var síðan árið 1953 sem Sundhöll Hafnarfjarðar var tekin í notkun eftir að byggt hafði verið yfir útilaugina.

Sundhöllin státar af innilaug sem  er 25 metrar að lengd og 8.7 metrar í breidd og í dýpri enda laugarinnar er hún 3.2m djúp.   Tveir rúmgóðir heitir pottar eru í afgirtum garði við bygginguna og eru þeir með öflugum nuddtækjum sem njóta mikilla vinsælda.   Jafnframt eru í lauginni í bæði karla og kvennaklefum sérstakir saunaklefar sem eru þeir einu sinnar tegundar hjá sundstöðunum í Hafnarfirði.

Sundhöllin er þekkt fyrir sitt rólega andrúsmloft.  Laugin er mikið notuð af eldri borgurum og íbúum í nágreinni laugarinnar, jafnframt sem Sundfélag Hafnarfjarðar er með hluta af sínum æfingatímum í lauginni og nemendur í Víðistaðaskóla og Engidalsskóla sækja þangað í skólasund.

Heimilisfang
Herfjólfsgötu 10
220 Hafnarfirði
Sími: 555-0088

Afgreiðslutími
Virka daga 6:30-19:00
Lokað um helgar

Ásvallalaug

asvallalaugÁsvallalaug var vígð 6. september 2008 í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Sundmiðstöðin er ein stærsta á landinu eða um 6.000 m². Þar er einnig heilsuræktarstöðin Hress í 600 m² rými, Ásmegin sjúkraþjálfun svo og féagsaðstaða Sundfélags Hafnarfjarðar og Íþróttafélagsins Fjarðar. Sundmiðstöðin skartar 50 metra sundlaug sem að jafnaði er skipt með brú þannig að helmingur laugarinnar er 25m að lengd og hinn helmingurinn er 50 m.

Í lauginni er jafnframt 17metra barnalaug (90-110cm djúp) og 10metra vaðlaug fyrir yngstu kynslóðina með tilheyrandi leikföngum.  Hitastig barnalauganna er um 32°C á meðan hitastig sundlaugar er 28°C. Hitastig inni í salnum er ávallt um 30°.   Innanhúss er einnig vinsæl vatnsrennibraut, þrír heitir pottar og eimbað.  Utandyra eru tveir heitir pottar og mjög góð sólbaðsaðstaða.

Starfsemin í Ásvallalaug er með fjölbreyttasta móti en þar má nefna auk hefðbundins skólasunds og sundæfinga félaganna, waterpolo, blak, æfingar köfunarfélaga, æfingar kajakræðara, námskeið fyrir verðandi og nýbakaðar mæður, námskeið í bættum sundstíl, ungbarnasund, vatnsleikfimi ofl.

Heimilisfang
Ásvöllum 2
221 Hafnarfirði
Sími: 512-4050

Afgreiðslutími
Virka daga 6:30-21:00
Laugardaga 08:00-18:00
Sunnudaga 08:00-17:00

Suðurbæjarlaug

sudurbaejarlaugÍ Suðurbæjarlaug er 12,5 x 25 metra útisundlaug sem er samtengd við sérhannaða kennslulaug inni sem einnig er góð barnalaug. Úti eru heitir pottar, vatnsgufa, bunusveppur, tvær vatnsrennibrautir og vinsæll göngustígur sem liggur um sundlaugargarðinn.

Í kjallara Suðurbæjarlaugar eru búningsklefar og Nautilus heilsuræktarstöð. Boðið er upp á ungbarnasund, vatnsleikfimi, sundkennslu og nudd. Í húsnæði laugarinnar starfa þrír nuddarar.

Heimilisfang

Hringbraut 77
220 Hafnarfjörður
Sími: 565 3080
Fax: 565 3731

Afgreiðslutími
Virka daga 6:30-21:00
Laugardaga 08:00-18:00
Sunnudaga 08:00-17:00