Forvarnir
Starfað er í anda forvarnastefnu og fjölskyldustefnu Hafnarfjarðar. Í stefnunni er leitast við að forvarnastarfið nái til sem flestra þátta sem stuðla að heilbrigðu líferni íbúanna. Ekkert mannlegt er forvarnastarfinu óviðkomandi. Forvarnir eru í dag viðloðandi fjölmörg verkefni sem unnin eru í skólum, félagsmiðstöðvum, íþróttafélögum og víðar. Meginmarkmiðið er að minnka vímuefnaneyslu ungs fólks, auka almenna heilsueflingu og draga úr afbrotatíðni í Hafnarfirði.
Hið félagslega umhverfi skiptir miklu máli um hvernig ungu fólki farnast í lífinu. Fjölskyldan, skólinn og skipulagt félagsstarf eru stofnanir nútímans sem skipta meginmáli varðandi uppeldi ungs fólks. Þessir þrír þættir eru líklegir til að geta minnkað vægi óæskilegra utanaðkomandi áhrifa og dregið úr eða minnkað áhættuhegðun á borð við neyslu fíkniefna. Því betri sem tengsl barna og foreldra eru og eftir því sem samverustundir með fjölskyldu eru fleiri því minni líkur eru á að ungmenni byrji að neyta fíkniefna. Einnig hefur þátttaka í skipulagðri íþrótta- og tómstundastarfsemi jákvæð áhrif á lífsstíl ungmenna. Skólar gegna lykilhlutverki í lífi fjölskyldunnar og nauðsynlegt er að þeir hafi skýra forvarnastefnu og tryggi gott samstarf heimilis og skóla.
