Vellir

Vellir eru nýbyggingarsvæði í hraðri uppbyggingu. Meginmarkmiðið með skipulagi Valla er vönduð hverfi og góð byggingarlist, góð tengsl við þjónustu og samgöngukerfi, umferðaröryggi, og góð tengsl við náttúru, m.a. með því að vernda hraunlandslag og fella að skipulagi hverfisins.

Á Völlunum búa nú um 4.323 manns og stærsti hluti íbúanna á aldrinum 21 – 40 ára. Börn á grunnskólaaldri eru 737 og um 660 á leikskólaaldri.

Í hverfinu er einn grunnskóli, Hraunvallaskóli og tveir leikskólar, Hraunvallaskóli og Hamravellir.


Á svæðinu er  sundlaug, Ásvallalaug og íþróttamiðstöð Hauka.
Stutt er í ósnortna náttúruna, Ásfjall og Ástjörn, Hvaleyravatnið og Bláfjöllin.

Deiliskipulag

Vellir 1

Vellir 2

Vellir 3

Vellir 4

Vellir 5

Vellir 6

Vellir 7

Skipulagsskilmálar