Miðbær
Miðbær Hafnarfjarðar er miðstöð opinberrar þjónustu í Hafnarfirði og verður efldur sem einn af helstu kjörnum verslunar, þjónustu og menningar á höfuðborgarsvæðinu.
Markmið skipulagsins er að í miðbæ Hafnarfjarðar sé mikið framboð verslunar og þjónustu og þar sé líflegt mannlíf og menningarstarfsemi sem laði að bæði íbúa og ferðamenn.
Á miðbæjarsvæðinu búa 3.385 manns. Um 300 börn er á leikskólaaldri og 380 börn á grunnskólaaldri. Á svæðinu er einn grunnskóli, Lækjarskóli og þrír leikskólar, Hörðuvellir , Arnarberg og Bjarmi.
Deiliskipulag
Deiliskipulagsskilmálar Miðbær 1. hluti
Deiliskipulagsskilmálar Miðbær 2. hluti
Deiliskipulagsskilmálar Norðurbakki
Skýringaruppdráttur Norðurbakki
