Skoða eftir ártali


SKIA

27. ágú. 2012

  • Ragnar Kjartansson dauðinn og börnin
    Ragnar Kjartansson dauðinn og börnin
  • Helgi Thorgils Fridjonsson
    Helgi Thorgils Fridjonsson
  • Ralph Hannam
    Ralph Hannam

Föstudaginn 31. ágúst verður opnuð í Hafnarborg sýningin SKIA. Gríska orðið skia (σκια) merkir skuggi, en á sýningunni eru kannaðar ólíkar birtingarmyndir skuggans í verkum nokkurra íslenskra myndlistarmanna frá því um miðja 20. öld og til samtímans. Sýningarstjórinn, Guðni Tómasson, hefur valið á sýninguna verk sem fjalla á einn eða annan hátt um skuggann. Á sýningunni birtist skugginn sem það náttúrulega fyrirbæri sem verið hefur hluti af listinni allt frá því menn tóku að gera eftirmyndir raunveruleikans í gegnum myndlist. En hann birtist einnig sem flóknara heimspekilegt fyrirbæri eða tákn um sálrænt ástand. Listaverkin eru af ýmsum toga, bæði málverk, ljósmyndir, myndbandsverk og skúlptúrar sem yfirtaka rýmið ýmist sem andlegur skuggi eða hlutgerður sem efnismassi.

Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Elías B. Halldórsson, Gabríela Friðriksdóttir, Haraldur Jónsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hringur Jóhannesson, Jóhann Briem, Katrín Elvarsdóttir, Kristján Guðmundsson, Magnús Pálsson, Ragnar Kjartansson, Ralph Hannam, Sigurður Árni Sigurðsson, Snorri Arinbjarnar og Þorvaldur Skúlason.

Í tengslum við sýninguna verður efnt til Skuggaleika þann 6. október en þar mætast listamenn og fræðimenn af ýmsum sviðum og kynna hugmyndir og rannsóknir af ólíkum toga sem þó fjalla allar um skuggann. Á meðal þátttakenda eru heimspekingur, eðlisfræðingur, guðfræðingur, listamenn sem eiga verk á sýningunni og sýningarstjóri.

Sýningin er afrakstur þess að Hafnarborg býður sýningnarstjórum að senda inn tillögur að haustsýningu í safninu. Þetta er í annað sinn sem þessi háttur er hafður á en haustið 2012 var sýningin Í bili sem unnin var af Ólöf Gerði Sigfúsdóttur hluti saman verkefnis. Tillaga Guðna Tómassonar þótti líkleg til að bregða áhugaverðu ljósi á íslenska myndlist en hann lagði upp með sýningu þar sem verk frá ólíkum tímum mætast og meðal annars leitað fanga í safneign Hafnarborgar. Á sýningunni eru jafnframt verk sem fengin eru að láni frá listamönnum og öðrum söfnum.

Guðni Tómasson listsagnfræðingur hlaut BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands 2001 og MA í listasögu frá University of St Andrews í Skotlandi 2003. Guðni hefur starfað sem dagskrárgerðarmaður á Rás 1 í menningarþættinum Víðsjá og haft umsjón með fjölmörgum öðrum útvarpsþáttum. Guðni starfar nú sem ráðgjafi mennta- og menningarmálaráðherra í menningarmálum og stundar meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Guðni annast leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 2. september kl. 15.

Dagskrá:
Sýningarstjóraspjall
Sunnudag 2. september kl. 15
Guðni Tómasson annast leiðsögn um sýninguna

Listamannsspjall
Fimmtudag 20. september kl. 20
Sigurður Árni Sigurðsson tekur þátt í leiðsögn um sýninguna

Listamannsspjall
Sunnudag 30. september kl. 15
Katrín Elvarsdóttir tekur þátt í leiðsögn um sýninguna

Skuggaleikar Laugardag 6. október kl. 13:00
Dagskrá þar sem listamenn og fræðimenn úr ólíkum áttum fjalla um skugga frá ýmsum hliðum. Á meðal þátttakenda eru Pétur Pétursson prófessor í guðfræði, Snævarr Guðmundsson landfræðingur, Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræðingur og myndlistarmenn sem eiga verk á sýningunni auk Guðna Tómassonar listsagnfræðings og sýningarstjóra SKIA. Sýningarstjóraspjall Fimmtudag 25. október kl. 20 Guðni Tómasson annast leiðsögn um sýninguna

Nánar um dagskrá á heimasíðu safnsins www.hafnarborg.is