Unnið að hreinsun útilistaverka
Nú í sumar stendur yfir átaksverkefni á vegum Hafnarborgar og Hafnarfjarðarbæjar þar sem unnið er að hreinsun útilistaverka bæjarins.
Átaksverkefnið stendur yfir í tvo mánuði, frá 5. júní til 5. ágúst og er unnið út frá skýrslu um ástand útilistaverka í Hafnarfirði sem forvörðurinn Jeanette Castioni vann árið 2009.
Það eru þær Ingibjörg Sólrún Sigmarsdóttir, nemi við Háskóla Íslands og Steinunn Katla Sævarsdóttir, nemi við Flensborgarskóla sem vinna að hreinsun og viðhaldi verkanna í samstarfi við Jeanette. Í júní luku þær við hreinsun á öllum koparlistaverkum bæjarins og má sjá mikinn mun á ástandi og útliti verkanna.

