Húsdýrahald og almennt gæludýrahald
Búið er að staðfesta samþykkt um húsdýrahald og almennt gæludýrahald í Hafnarfirði.
Markmið bæjarstjórnar Hafnarfjarðar með samþykktinni er að tryggja öryggi, hollustuhætti, góða umgengni og fullnægjandi mengunarvarnir vegna húsdýrahalds og almenns gæludýrahalds í Hafnarfirði.
Um dýrahald í atvinnuskyni skal farið að ákvæðum reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 og reglugerð um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun nr. 785/1999.
Hér er hægt að skoða samþykktina.
