Skoða eftir ártali


Leiðsögn um sýningar í Hafnarborg

4. júl. 2012

  • 36248_hafnarborg_-ny
    Hafnarborg

Íslenski safnadagurinn 2012 verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 8. júlí.

Í Hafnarborg er ókeypis aðgangur og boðið verður upp á leiðsögn um yfirstandandi sýningar. Ólöf K. Sigurðardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, mun leiða gesti um sýningarnar kl. 13:30. Síðasta abstraktsjónin er sýning á verkum Eiríks Smith frá árunum 1964 – 1968.

Á sýningunni eru tjáningarrík abstraktmálverk þar sem nálægð listamannsins er mikil og engu líkara en hann endurvinni á strigann sterkar upplifanir og hrifningu af umhverfinu og náttúrunni. Sýningin er þriðja í röð sýninga sem Hafnarborg heldur og kynna ólík tímabil á löngum ferli Eiríks Smith. Flest verkanna á sýningunni eru úr safneign Hafnarborgar en safnið varðveitir fjölda verka sem Eiríkur færði því að gjöf árið 1990. 

Í Sverrissal stendur yfir sýningin Hús, sýning á ljósmynda- og textaverkunum House Project, Annað hús og Þriðja hús eftir Hrein Friðfinnsson. Elsta verkið, House Project, er frá 1974 og er á meðal þekktari verka Hreins en Þriðja hús er nýtt verk sem nú er sýnt í fyrsta skipti. Verkin tengjast öll hvert öðru en hafa ekki fyrr verið sýnd saman. Hreinn Friðfinnsson er á meðal þeirra íslensku listamanna sem öðlast hafa mesta viðurkenningu alþjóðlega. Hann hefur sýnt á einkasýningum og samsýningum um allan heim og eru verk eftir hann í eigu fjölda opinberra safna og einkasafna. Hreinn tók þátt í stofnun SÚM hópsins á 7. áratugnum og er einn af leiðandi listamönnum íslenskrar konseptlistar.

Hreinn fæddist í Dölunum árið 1943 og nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hann hefur frá 1971 búið og starfað í Amsterdam, en þrátt fyrir það má hvarvetna greina áhrif hans og mikilvægi fyrir íslenska myndlist.

Hafnarborg er opin frá 12 – 17 alla daga nema þriðjudaga. Alla fimmtudaga er opið frá kl. 12 -21. Aðgangur að safninu er ókeypis.

www.hafnarborg.is