Viðurkenning til Víðistaðaskóla
Víðistaðaskóli hlýtur viðurkenningu fræðsluráðs Hafnarfjarðar árið 2012. Viðurkenningin var afhent á starfsmannafundi í skólanum í morgun. Viðurkenninguna hlýtur skólinn fyrir stærðfræðikennslu á unglingastigi og árangri sínum í BEST stærðfræðikeppninni. Skólinn hefur tvisvar unnið landskeppnina á Íslandi og í ár varð skólinn í þriðja sæti eftir að hafa átt tvo bekki í úrslitum keppninnar. Með viðurkenningunni er beind athygli að þætti skólans í stærðfræðikennslu þar sem farnar eru fjölbreyttar leiðir til að efla áhuga og færni nemenda á stærðfræði og stærðfræðilegum viðfangsefnum í daglegu lífi.
Til hamingju Víðistaðaskóli.

