Skólakot vantar nýtt nafn.
Frístundaheimilið Skólakot í Víðistaðaskóla vantar nýtt nafn og efnir því til nafnasamkeppni. Eins og margir vita var rekstur heilsdagsskólans færður yfir til ÍTH, skrifstofu æskulýðsmála, síðastliðið sumar og stofnuð frístundaheimili í þeirra stað og reksturinn sameinaður starfi félagsmiðstöðvanna. Í Víðistaðaskóla er nú starfrækt tómstundamiðstöð sem sér um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins, frístundaheimilins Skólakots í Víðistaðaskóla og frístundaheimilins Álfahrauns í starfsstöðinni Engidal. www.hraunid.is Rekstur Skólakots er því ekki lengur á höndum skólans þrátt fyrir gott samstarf þar á milli. Nafnið vísar þó ennþá til skólans og því hefur verið ákveðið að efna til nafnasamkeppni og finna nýtt nafn á frístundaheimilið. Hægt er að senda inn hugmyndir í tölvupósti á andriom@hafnarfjordur.is eða í hugmyndakassann í Skólakoti til og með 31. maí. Nýtt nafn verður tilkynnt 1. júní.
