Næstu hverfafundir bæjarstjóra
Í byrjun maí voru haldnir hverfafundir á Völlum og í Áslandi og nú hefur bæjarstjóri, Guðmundur Rúnar Árnason boðað til funda í öðrum hverfum bæjarins.
Á fundunum verður lögð áhersla á næstu framkvæmdir í hverfunum, skipulag og uppbyggingu, skólamál, þjónustu og annað sem brennur á íbúum hverfanna.
NORÐURBÆR - VESTURBÆR
Mánudaginn 14. maí kl. 20
Fundarstaður: Víðistaðaskóli
SETBERG - HRAUN - MIÐBÆR
Miðvikudaginn 16. maí kl. 20
Fundarstaður: Setbergsskóli
SUÐURBÆR - HVALEYRARHOLT
Miðvikudaginn 23. maí kl. 20
Fundarstaður: Hvaleyrarskóli
Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á fundina
