Skoða eftir ártali


90% foreldra ánægðir með daggæslu

25. apr. 2012

  • Mynd úr starfi hjá dagforeldrum
    Flottir krakkar að leik

Í byrjun mars gerði fræðsluþjónustan könnun meðal foreldra með börn hjá dagforeldrum. Könnunin er liður í því að gefa foreldrum kost á að koma athugasemdum sínum á framfæri varðandi þjónustuna.

Könnunin var send út rafrænt til 240 aðila og svöruðu 162 sem gerir 67,5% svörun. Þegar niðurstöður eru skoðaðar kemur fram að 90% foreldra eru mjög ánægðir eða frekar ánægðir með daggæslu barns síns og telja að því líði vel og aðbúnaður sé góður.

Það sem foreldrar benda helst á í athugasemdum sínum og bæta þarf úr er að upplýsingaflæði megi vera betra og reglur skýrari varðandi daggæsluna.