Hafnarfjörður á iði á morgun
Á morgun mun Hafnarfjörður iða af lífi þegar nálægt 7000 manns, nemendur og starfsfólk í leik-, grunn- og framhaldsskólum bæjarins mun hittast á átta stöðum í bænum í hreyfingu og söng.
Þessir átta staðir eru Hraunvallaskólalóð, Áslandsskólalóð, golfvöllur Keilis, Flensborgarskólalóð, Hörðuvellir, Setbergsskólalóð, Víðistaðatún og skólalóðin í Engidal (starfsstöð Víðistaðaskóla og Álfabergs) þar sem allir hittast kl. 10.30 og samveru lýkur fyrir kl. 11.
Á hverjum stað verður útisamvera þar sem hreyfing og söngur verða í hávegum höfð og allir syngja saman lögin Í rigningu ég syng, Höfuð, herðar, hné og tær og Ávaxtalagið.
Við Flensborgarskóla verður bæjarstjóranum í Hafnarfirði boðið að taka þátt í deginum. Áður en nemendur og starfsfólk skólanna hittast á svæðunum átta munu þeir fara í gönguferð um nágrenni skólanna og dagurinn í heild verður tileinkaður hreyfingu í skólum bæjarins.
Hafnarfjörður á iði er heiti verkefnisins og tilgangur þess er að minna á mikilvægi hreyfingar á hverjum degi fyrir heilbrigt líf. Verkefnið er liður í heilsueflingu í skólastarfi þar sem sumir leik-, grunn- og framhaldsskólar í Hafnarfirði eru formlegir þátttakendur í lýðheilsueflandi verkefnum á vegum Lýðheilsustöðvar/Landlæknisembættisins en allir eru virkir í hreyfingu.

