Þekkir þú fólkið á myndinni ?
Ljósmyndasafn Byggðasafns Hafnarfjarðar varðveitir í kringum 140 þúsund filmur, myndir og glerplötur. Nú stendur yfir átak í skráningu á ljósmyndum frá ýmsum tímabilum í sögu bæjarins og er leitað til ykkar, bæjarbúa, um aðstoð.
Mynd dagsins er frá skemmtun í tilefni af 50 ára afmæli Bæjarútgerðarinnar árið 1981. Hér má sjá prúðbúið fólk við borðhald. Þekkir þú fólkið ? Ef svo er sendu okkur línu á netfangið rosakaren@hafnarfjordur.is
