Mánudagspistill bæjarstjóra
Ágæta samstarfsfólk Á fundi Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í síðustu viku var þriggja ára fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árin 2013–2015 lögð fram til fyrri umræðu.
Gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarafkomu öll árin, 753 millj.kr. á árinu 2013 , 1,1 ma.kr. á árinu 2014 og um 1,3 ma. kr. á árinu 2015. Fjármagnsliðir eru áætlaðir á árinu 2013 1,3 ma. kr en fara lækkandi á árunum 2014 og 2015 vegna lækkandi skulda. Eigið fé hækkar sem nemur jákvæðri afkomu og skuldir lækka umtalsvert á tímabilinu. Veltufé frá rekstri er sá mælikvarði sem litið er til þegar meta skal getu sveitarfélagsins til að standa við skuldbindingar sínar. Mælikvarðinn gefur meðal annars vísbendingu um hversu mikið er til ráðstöfunar frá rekstri til fjárfestinga og til greiðslu skulda.
Á árunum 2013-2015 er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði á bilinu 2 -2,4 ma kr. sem nemur um 12-14% af heildartekjum. Áætluðum fjárfestingum verður haldið í lágmarki eða um 190 millj.kr. á árinu 2013 og 2014 en fara í 350 millj.kr. á árinu 2015. Gert er ráð fyrir 200 millj. kr. lóðasölu á árinu 2013 og 2014 og 300 millj. kr. sölu á árinu 2015 en í áætluninni er gert ráð fyrir að andvirði lóðanna fari til niðurgreiðslu skulda. Ekki er gert ráð fyrir nýjum lántökum fyrr en á árinu 2015 þegar kemur að endurfjármögnun erlenda lána. Afborganir langtímalána og leiguskulda eru um 1,8 ma.kr. 2013, um 2,0 ma.kr. 2014 og 12,5 ma.kr. á árinu 2015. Þriggja ára áætlunin staðfestir, að markmið fjárhagsáætlana undanfarinna ára hafa gengið eftir.
Það kemur skýrt fram í þessari áætlun að viðsnúningur er í rekstri bæjarins og niðurgreiðsla á skuldum verður umtalsverð á tímabilinu 2013- 2015. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka samstarfsfólki fyrir þá vinnu sem það hefur lagt á sig til að gera þennan árangur mögulegan.
Það var margt um að vera í síðustu viku. Ég átti þess kost að vera viðstaddur lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar i Hafnarborg, þar sem tveir nemendur úr 7. bekk i hverjum skóla kepptu í famsögn og tjáningu. Allir keppendur stóðu sig með miklum sóma, en með sigur af hólmi fóru þau Margrét Hörn Jóhannsdóttir (Víðistaðaskóla) í 1. sæti, Alex Elí Schweitz Jakobsson (Víðistaðaskóla) í öðru sæti og Margrét Stefánsdóttir (Öldutúnsskóla) í þriðja sæti. Viðstödd voru skáld keppninnar, þau Kristín Helga Gunnarsdóttir og Gyrðir Elíasson.
Á föstudagskvöldið var söngleikurinn Hairspray frumsýndur í Víðistaðaskóla. Sýningin er samstarfsverkefni Víðistaðaskóla, félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins, nemenda í 10. bekk og foreldra þeirra og aðal fjáröflun fyrir útskriftarferð nemenda í vor. Allir unglingarnir í árganginum fá verkefni í sýningunni, s.s. við að leika, syngja og dansa, spila undir á hljóðfæri í hljómsveitinni, útbúa leikmynd, selja miða, sjá um tæknimál og fleira. Undirbúningur hefur staðið yfir í allan vetur. Sýningin var frábær skemmtun og öllum aðstandendum til mikils sóma.
Síðastliðinn laugardag var svokallað barnakóramót, þar sem næstum 300 börn í kórum í Áslandsskóla, Lækjarskóla, Setbergsskóla, Öldutúnsskóla, sönghópur úr Víðistaðakirkju og Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju sungu á tvennum tónleikum.
Í síðustu viku voru þemadagar í Hvaleyrarskóla. Þemað var heimsálfan Afríka. Þemadögunum lauk á föstudaginn, með opnu húsi. Þá gafst gestum og gangandi kostur á að heimsækja skólann, kynna sér verkefni nemendanna og kaupa grímur, leirmuni, skartgripi, sultu og margt fleira sem nemendur höfðu búið til á þemadögunum. Afrakstur sölunnar rennur til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna - UNICEF. Frábært framtak hjá nemendum og starfsfólki Hvaleyrarskóla.
Að lokum minni ég á Gaflarakaffið um skólamál, sem haldið verður næstkomandi laugardag. Þar verður rætt um framtíðarsýn um skólaskipan í bænum. Ég hvet alla til að mæta í Lækjarskólann á laugardaginn, milli 11 og 13 - og taka þátt í að móta stefnuna.
Með kveðju,
Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri

