Skoða eftir ártali


Mánudagspistill bæjarstjóra

8. feb. 2012

  • gudmundurrunar
    gudmundurrunar

Í dag, 6. febrúar, er Dagur leiksskólans. Af því tilefni langar mig til þess að óska samstarfsfólki okkar í leikskólum bæjarins til hamingju með daginn.

Tilgangurinn með deginum er að auka jákvæða umræðu um leikskólann og það starf sem þar fer fram. Margt var gert í tilefni dagsins í leikskólunum. Sumt af því má sjá á heimasíðum leikskólanna. Á LÆKNUM - innri vefnum okkar - er hægt að smella á leikskólar á forsíðunni og þá koma upp fréttir frá öllum leikskólunum.

Það er mikill metnaður í leikskólastarfinu. Leikskólarnir státa af mismunandi stefnum í starfi sínu, sem hver um sig er byggð á uppsafnaðri reynslu og rannsóknum. Það er óhætt að fullyrða að á fáum sviðum í starfsemi bæjarins hafa orðið jafn stórstígar framfarir á undanförnum áratugum og í leikskólastarfinu. Með framsýni og dugnaði - en án strits.

Á föstudaginn taka söfnin í bænum - Bóksafnið, Byggðasafnið og Hafnarborg - þátt í svokallaðri Safnanótt og munu iða af lífi til miðnættis. Dagskráin er vel þess virði að kynna sér hana. Hana er að finna á vef bæjarins, auk þess sem hún hefur verið send til ykkar í tölvupósti. Meðal þess sem boðið er upp á, er ratleikur, leiðsögn um sýningar, sögur af myrkri, gjörningur, video og kvikmyndir svo eitthvað sé nefnt. Spennandi kvöld framundan á söfnum bæjarins.

Sjáumst á Safnanótt.
Með kveðju, Guðmundur Rúnar Árnason