Skoða eftir ártali


Innleiðing aðalnámskrár grunnskóla

23. jan. 2012

  • Frá Lækjarskóla
    Frá Lækjarskóla

Ný lög um grunnskóla komu árið 2008 og reglugerðir sem henni tengjast (nálægt 20) komu út á árunum 2009-2011. Árið 2011 kom út Aðalnámskrá grunnskóla—almennur hluti. Þá er aðeins ókomin út Aðalnámskrá grunnskóla—námsgreinahluti sem er væntanleg. Samkvæmt nýrri aðalnámskrá skal taka þrjú ár að innleiða hana í skólastarf. Framundan er því innleiðing nýrrar aðalnámskrár í öllum grunnskólum, og leikskólum reynda líka, á landinu. Í Hafnarfirði er hafinn undirbúningur að þessari innleiðingu á samræmdum vettvangi en þess utan mun fara fram vinna í hverjum skóla eftir því sem þar verður ákveðið. Á vorönn 2012 verður sérstakt kynningarátak um aðalnámskrá grunnskóla í Hafnarfirði. Boðað verður til sérstakrar fundarraðar með stjórnendum grunnskólanna til að kynna og ræða ýmis atriði varðandi innleiðingu og þær áherslur sem verða í sameiginlegri framkvæmd hennar. Þá eru væntanlegir kynningarfundir fyrir kennara í bænum. Þá er stefnt að því að miðlægt skipulag símenntunar frá Skólaskrifstofunni næsta vetur muni tengjast innleiðingu nýrrar aðalnámskrár grunnskóla og þá sérstaklega sex grunnþáttum menntunar samkvæmt aðalnámskránni. Allt þetta verður kynnt skólunum þegar nær dregur.