Skoða eftir ártali


Hafnarfjörður í tali og tónum - 16.nóvember

11. nóv. 2008

Sunnudaginn 16. nóvember verður flutt dagskrá í tilefni 100 ára afmælis Hafnarfjarðar árið 2008. Dagskráin fer fram í Hásölum við Hafnarfjarðarkirkju og er á vegum Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Þetta er á degi íslenskrar tungu þar sem lesarar úr Stóru upplestrarkeppninni í Hafnarfirði flytja svipmyndir úr sögu Hafnarfjarðar. Þess utan verða tónlistaratriði á dagskrá frá nemendum í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og kór Öldutúnsskóla mun syngja.
 
Allir hjartanlega velkomnir

Myndin er frá lokahátíð Stóru upplestrarkeppninar vorið 2008.