Niðurstöður hraðamælinga við grunnskóla bæjarins
8. okt. 2008
Á undanförnum dögum hefur umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu unnið að hraðamælingum við flesta grunnskóla í Hafnarfirði og við grunnskólann á Álftanesi. Til verksins var notuð ómerkt lögreglubifreið sem búin er myndavélabúnaði. Eins og við var að búast voru niðurstöður mismunandi en segja má að mælingar á Hlíðarbergi við Setbergsskóla og Hraunbrún við Víðistaðaskóla hafi komið verst út úr mælingunum í Hafnarfirði og þá var útkoman ekki góð á Breiðumýri við Álftanesskóla. Mælt var í eina klukkustund á hverjum stað. Á Hraunbrún voru 20 kærðir af þeim 39 sem mældir voru. Á Hlíðarbergi voru 31 kærðir af þeim 110 sem óku framhjá myndavélinni. Í Kríuási við Áslandsskóla voru 8 kærðir af þeim 22 sem mældir voru. Ökumenn voru til fyrirmyndar á Háholti við Hvaleyrarskóla þar sem aðeins 2 voru kærðir af 31 sem voru mældir. Við Álftanesskóla voru mæld 64 ökutæki og af þeim voru kærðir 33 ökumenn. Á Hjallabraut við Hjallaskóla voru 21 ökumaður kærður af þeim 104 sem mældir voru en það er eina gatan sem ber 50 km. hámarkshraða. Á öðrum stöðum er 30 km. hámarkshraði