Skoða eftir ártali


Hvernig finnst þér að Óla Run túnið eigi að vera?

11. sep. 2008

Umhverfisnefnd Hafnarfjarðarbæjar hefur sett af stað hugmyndasamkeppni meðal bæjarbúa um skipulag á Óla Run túni neðan við Lindarhvamm. Túnið er kennt við Ólaf nokkurn Runólfsson sem átti túnið í eina tíð. Hann var fæddur 1891 og dó 1967. Ólafur var fjárbóndi og átti fjárhús sem stóð við Smyrlahraun en notaði umrætt tún til beitar.  

Markmið samkeppninnar er að kalla fram hugmyndaauðgi bæjarbúa og fá fram sem fjölbreyttastar hugmyndir um notkun á Óla Run túninu – hugmyndir sem veita innblástur til frekara skipulags svæðisins.
 
Svæðið er skilgreint sem opið svæði –„grænt svæði“. Það á að nýtast öllum bæjarbúum, ungum sem öldnum og vera Hafnarfirði til sóma.
 
Bæjarbúar eru hvattir til að senda teikningu, ljóð, sögur, sendibréf, líkan, útsaum, leirmynd, tréskurð, myndband, ljósmynd, frumsamið lag – hvaðeina sem lýsir hugmyndum þeirra um það hvernig Óla Run tún eigi að vera
 
Ekki er til staðlað innsendingarform. Hugmyndunum skal skilað á því formi sem þátttakendur kjósa og þeir telja að þjóni hugmyndinni sem best. Innsendingar skulu merktar með dulnefni. Nafn þátttakanda ásamt heimilisfangi og símanúmeri og/eða netfangi, skal fylgja með í lokuðu umslagi sem merkt er dulnefninu.

Allar innsendingar verða ljósmyndaðar og sýndar á nýjum þjónustuvef fyrir Hafnfirðinga, Íbúagáttinni .  Allar innsendingar verða sýndar undir nafni þátttakanda.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjár athyglisverðustu hugmyndirnar sem hér segir:
1. verðlaun: 100.000 kr.
2. verðlaun: 50.000 kr.
3. verðlaun: 25.000 kr.
 
Að auki verða veitt verðlaun sem koma á óvart fyrir óvenjulegustu hugmyndina.
 
Dómnefndina skipa:
 
Guðfinna Guðmundsdóttir formaður umhverfisnefndar.
Bergur Ólafsson fulltrúi í umhverfisnefnd.
Brynjólfur Jónsson, Binni ljósmyndari, íbúi við Óla Run tún.
Guðrún Bjarnveig Jónsdóttir form. nemendaráðs Hvaleyrarskóla.
Alice Olivia Clarke mósaik listakona.


 
Hugmyndum skal skilað í síðasta lagi 20. maí 2008 í Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6.
 
Um Óla Run var ort:

Óli Run í orðum hýr,
ei sig mátti spara.
Hafði sauðfé, hross og kýr,
hænsni og rabarbara.