Fráveitumál- eitt af stærstu verkefnum komandi ára
Eitt af stærstu verkefnum næstu ára hjá Hafnarfjarðarbæ er að koma fráveitu bæjarfélagsins í viðunandi horf. Í lögum nr. 53 8. mars 1995 er kveðið svo á að sveitarfélög skuli koma fráveitumálum sínum í lag fyrir 31. desember 2005. Hafnarfjarðarbær er samkvæmt þessu skuldbundinn til þess að grófhreinsa allt skólp og koma því út að þynningarmörkum í sjó . Tíminn er að renna frá okkur og afar brýnt að taka verulega í fráveitumálum. Byggja þarf dælustöðvar, hreinsistöð, leggja lagnir og útrásir. Engar framkvæmdir hafa átt sér stað frá því að dælustöðin við Óseyrarbraut var tekin í notkun vorið 1998. Kostnaður við fyrirhugaðar framkvæmdir er áætlaður um 760 milljónir þegar frá er dreginn hlutur ríkisins, sem leggur fram 20#PR af kostnaði. Að auki þarf víða að endurnýja lagnir fyrir verulegar upphæðir.
Fráveita Hafnarfjarðar tók til starfa í byrjun árs 2003 og hefur tíminn verið nýttur til að vinna að margvíslegri undirbúningsvinnu.
Til að mæta fyrirhuguðum útgjöldum samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar hækkun á holræsagjöldum tímabundið úr 0,12#PR af fasteignamati í 0,16#PR.
Það er stefna bæjarins að gera stórátak í þessu brýna umhverfismáli og ljúka á næstu 3 árum nýlögnum og tengingum, uppbyggingu dælustöðva og uppsetningu hreinsistöðvar og útrásar.
Ljósmynd Guðni Gísla.
