Á laugardaginn verður kveikt á umferðarljósunum í Lækjargötu
Slökkt var á umferðarljósunum á gatnamótum Öldugötu og Lækjargötu nú í sumar þegar hafnar voru framkvæmdir á Lækargötu. Nú þegar umferð er orðin nokkuð óhindruð um verksvæði Reykjanesbrautar og þá sérstaklega gatnamót Hlíðarbergs og Reykjanesbrautar, hefur verið ákveðið að endurstilla ljósin og kveikja á þeim. Nokkuð hefur borist af ábendingum varðandi erfiðleika gangandi vegfaranda við að komast yfir þessi gatnamót meðan slökkt var á ljósunum.
