Skoða eftir ártali


Jólaþorpið opnar á morgun og um leið verður kveikt á jólatrénu f

29. nóv. 2004

Á morgun hefst jólaævintýrið í Jólaþorpinu við Hafnarborg en þar hafa nú risið 20 falleg hús í öllum regnbogans litum, þau er fagurlega skreytt inn á milli trjáa sem leikskólabörn bæjarins hafa skreytt af mikilli list. Í Jólaþorpinu verða til sölu vörur sem tengjast jólunum, þ.e. jólaskraut, matvara og gjafvörur. Á morgun verða tendruð ljósin á jólatrénu frá Frederiksberg, karlakórinn Þrestir tekur lagið og jólasveinar og Grýla koma í heimsókn.

Á sunnudaginn hefst jólaævintýrið aftur , þegar m.a. Nylon, Jón Sigurðsson, Kammerkór Hafnarfjarðar auk Grýlu  heimsækja þorpið.

Nýtt ævintýri hefst svo næstu helgi – endilega fylgist með á jólaslóðinni okkar.

Laugardagur
Jólatréskemmtun 27. nóvember
Hafnarborg kl. 14:00
Jólatréð er gjöf frá vinabænum Frederiksberg
Lúðrasveit
Karlakórinn Þrestir syngja.
Sendiherra Dana á Íslandi, Lasse Reimann flytur kveðju og tendrar ljósin.
Séra Gunnþór Ingason les hugvekju
Forseti bæjarstjórnar, Gunnar Svavarson flytur ávarp
Leikskólakór syngur nokkur lög
Jólasveinar og Grýla koma í heimsókn.
Jólatréskemmtun 27.nóvember

Flensborgarhöfn kl 16:00
Jólatréð er gjöf frá vinabænum Cuxhaven
Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
Ávarp frá formanni Hafnarstjórnar
Fulltrúi Cuxhaven og Þýski Sendiherrann flytur kveðju
Kvennakór Hafnarfjarðar
Jólasveinar koma í heimsókn

Sunnudagur kl. 14.00
Nylon
Jón Sigurðsson,
Kammerkór Hafnarfjarðar
Grýla og jólasveinn

Verið velkomin í eina Jólaþop landsins við Hafnarborg í Hafnarfirði.