Skoða eftir ártali


Ályktað um vændisfrumvarpið

30. okt. 2003

Lýðræðis- og jafnréttisnefnd Hafnarfjarðar ályktaði á fundi sínum í gær, miðvikudaginn 29. október, um vændisfrumvarpið sem lagt hefur verið fram á Alþingi og tekið verður til 1. umræðu á þingfundi í dag. Meirihluti nefndarinnar lagði fram svohljóðandi ályktun: “Meirihluti Lýðræðis- og jafnréttisnefndar Hafnarfjarðar fagnar því að fram sé komið frumvarp til breytinga á 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 sem lagt hefur verið fram á Alþingi (vændisfrumvarpið). Meirihlutinn telur að frumvarpið muni leiða til þarfrar umræðu í þjóðfélaginu um kynlífsiðnaðinn og afleiðingar hans. “

Lýðræðis- og jafnréttisnefndin fjallaði einnig á fundi sínum í gær um starfsviðurkenningu Reykjavíkurborgar árið 2002 sem Hildur Jónsdóttir jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar hlaut og Jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs árið 2003 sem féll í skaut Kvenréttindafélags Íslands. Vill nefndin koma hamingjuóskum á framfæri til þeirra sem viðurkenningarnar hlutu.