Skoða eftir ártali


Sundlaugar bæjarins

14. jan. 2002

Þrír sundstaðir eru í Hafnarfirði. Þar fer fram sundkennsla á vegum skólanna og æfingar sundfélagsins, auk sundiðkana almennings. Sundlaugargestir eru um 295.000 á ári, auk þeirra sem stunda skólasund og æfingar. Sundstaðir eru þessir: Sundhöll Hafnarfjarðar. Hún var tekin í notkun árið 1943 Stærð laugar er 8,4x25 m. Byggt var yfir laugina 1952, en heitir pottar eru á útisvæði. Gufubað er einnig við laugina.  Suðurbæjarlaug. Hún var opnuð árið 1989 en þá var tekin í notkun 12x25 m útilaug. Ári síðar var vígð innilaug, sem er sérútbúin kennslulaug. Stærð hennar er 8x12,5 m. Utandyra eru heitir pottar, bunusveppur og þrjár vatnsrennibrautir, er voru teknar í notkun 2008. Á staðnum eru einnig heilsurækt sem verið er að stækk.Ásvallalaug. Ásvallalaug var opnuð í september 2008 Ásvallalaug er 50 metra innilaug, 16,7 metra barnalaug, 10 metra vaðlaug með leiktækjum, 3 heitir pottar, eimbað og rennibraut, allt undir sama þaki. Í húsinu er einnig starfrækt Hress heilsurækt og Ásmegin sjúkraþjálfun.