Fyrstu fimm nemarnir útskrifaðir
Laugardaginn 12. júní útskrifuðust fyrstu fimm nemarnir úr Hafnarfirði í fjarnámi í leikskólafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Í mars 2001 var undirritaður samningur við nemana og í byrjun fór námið fram í Kópavogi en í dag fer námið að mestu fram í Námsflokkum Hafnarfjarðar – Miðstöð símenntunar. Árið 2001 var einnig undirritaður samningur við sex nema í Kennaraháskóla Íslands til diplomanáms sem er tveggja ára nám í leikskólafræðum og héldu allir nemarnir áfram námi til að afla sér leikskólakennaramenntunar. Á laugardaginn lauk einn nemi úr þeim hópi fjarnámi sem leikskólakennari. Af því tilefni var nýútskrifuðum leikskólakennurum og leikskólastjórum boðið til fagnaðar á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar mánudaginn 14. júní.
