Félagsleg aðstoð

Rétturinn til félagslegs öryggis felur í sér að til staðar sé skilvirkt kerfi sem tryggir að allir einstaklingar fái grundvallarþörfum sínum mætt.

Hafnarfjarðarbær tryggir þeim sem þess þurfa félagslega aðstoð með það að markmiði að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar.

Við framkvæmd þjónustunnar skal þess gætt að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar.