Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar

Srandgata 4
Opið alla virka daga frá 9:00 - 15:00 nema föstudaga til 12:00
Sími 585 - 5565

Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar er við Strandgötu 4. Þar er sinnt svæðisbundinni vinnumiðlun, ráðgjöf og annarri þjónustu við atvinnuleitendur í Hafnarfirði.

Markmið atvinnumiðstöðvarinnar er að efla þjónustu við unga atvinnuleitendur og fólk sem hefur verið án atvinnu um langt skeið og aðstoða þá við að verða á ný virkir þátttakendur á vinnumarkaði. Sérstaklega er unnið að því að efla vinnumiðlun og faglega starfs- og námsráðgjöf, auka virkni atvinnuleitenda og byggja upp fjölbreytt framboð vinnumarkaðsúrræða á svæðinu, t.d. með auknum ráðningum atvinnuleitenda í starfsþjálfun, reynsluráðningum, vinnustaðanámi og átaksverkefnum.

Guðjón Árnason og Laufey Brá Jónsdóttir eru verkefnastjórar hjá Atvinnumiðstöðinni. Þau hvetja fyrirtæki í Hafnarfirði til þess að hafa samband og vera virk í að nýta sér þau tækifæri sem bjóðast hjá Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar. Jafnframt ættu atvinnuleitendur í Hafnarfirði að kíkja við og nýta sér þá þjónustu sem í boði er. Það skiptir sköpum að atvinnuleitendur festist ekki í því hlutverki að vera án atvinnu. Því kappkostar Hafnarfjarðarbær við að koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi

Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar er fyrsta atvinnumiðlunin sinnar tegundar og hefur rekstur hennar gengið vonum framar frá opnun á vormánuðum 2010. Hafnfirskir atvinnuleitendur hafa tekið þessari auknu þjónustu fegins hendi og verið afar duglegir að nýta hana.

Hafnfirskum atvinnuleitendum stendur til boða fríkort í allar sundlaugar bæjarins og Bókasafnið. Það þarf aðeins að mæta á Atvinnumiðstöðina og fá staðfestingu á atvinnuleysinu til að framvísa í sundlaugum og Bókasafni.

Netföng  laufeyb@hafnarfjordur.is og gaui@hafnarfjordur.is

Ráðgjafar frá vinnumálastofnun eru með fasta viðveru á fimmtudögum frá kl: 9:00-12:00 fyrir þá sem eru eldri en 30 ára og á þriðjudögum frá 9:00 til 12:00 fyrir þá sem eru yngri en 30 ára.

Hægt er að panta tíma hjá ráðgjafa þeir sem eru eldri en 30 ára sendi póst eða fyrirspurn á gaui@hafnarfjordur.is og þeir
sem eru eru yngri en 25 ára sendi póst eða fyrispurn á laufeyb@hafnarfjordur.is .