Lóðir og framkvæmdir

Land í eigu Hafnarfjarðar samanstendur af fjórum fornum bújörðum, Hvaleyri, Jófríðarstöðum, Hamarskoti og Akurgerði. Innan núverandi staðarmarka eru að auki hluti jarðarinnar Setberg og jarðirnar Óttarstaðir og  Lónakot. Jarðirnar Krýsuvík og Stóri Nýibær voru teknar eignarnámi 1937.

Lóðum er skipt í byggðar lóðir, tilbúnar lóðir (gatnagerð búin), skipulagðar byggingarlóðir (gatnagerð ekki hafin) og land sem ekki er skipulagt byggingarland.

Skráðar lóðir í fasteignaskrá 1.12.2011 eru 5.250

Lóðir sem tilbúnar eru til byggingar í dag eru nánast alfarið á Völlum 7 fyrir íbúðabyggð og í Selhrauni, Hellnahrauni og Kapelluhrauni fyrir atvinnuhúsnæði.