Þjónusta
Hafnarfjörður er þriðji stærsti bær landsins með rúmlega 26.000 íbúa. Hafnarfjörður er framsækið sveitarfélag sem byggir á fjölskylduvænu umhverfi, fyrirmyndarþjónustu og öflugu atvinnulífi.
Hafnarfjarðarbær kappkostar að veita bæjarbúum og öðrum þeim sem þurfa á þjónustu frá bæjarfélaginu að halda fyrirmyndarþjónustu. Áhersla er lögð á rafræna þjónustu þar sem allir eiga þess kost að reka erindi og mál á vefnum með öruggum hætti, hvar og hvenær sem er.
Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar er staðsett á Strandgötu 6. Þjónustuverið er í framlínu fyrir allar deildir og stofnanir bæjarins og er ætlað að einfalda og bæta aðgengi að upplýsingum og þjónustu sem bærinn veitir.
Þjónustuverið er opið alla virka daga milli kl. 08:00 og 16:00. Sími 585 5500.

