Stjórnkerfi
Hafnarfjarðarbær vill byggja upp skilvirkt stjórnkerfi þar sem starfar starfsfólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði.
Stjórnsýsla Hafnarfjarðarbæjar er tvískipt
Annars vegar er pólitíska kerfið, lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar sem skipa bæjarstjórn og nefndir sem bæjarstjórn skipar samkvæmt samþykkt um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann. Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins, ráðinn af bæjarstjórn. Hann hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og fer ásamt bæjarráði með framkvæmda- og fjármálastjórn bæjarins.

