Aðalskipulagið markar framtíðarsýn um það hvers konar bæ við viljum byggja á næstu árum: hver markmið okkar eru, hvernig við ætlum að ná þeim, og hvaða kostnað það hefur í för með sér. Með því segjum við hvers konar umhverfi við viljum búa í, hvernig við viljum fara að því að skapa það umhverfi og hverju við þurfum hugsanlega að fórna í staðinn. Aðalskipulag snýst um fólk, fólkið sem býr í bænum og á að lifa í því umhverfi sem við búum okkur. Það snýst líka um fyrirtæki, hvaða fyrirtæki við viljum laða að okkur til að skapa atvinnu og tekjur fyrir bæjarfélagið, og til að taka þátt í að skapa umhverfi okkar. Það snýst líka um fjármagn, því án fjármagns getum við ekki byggt þann bæ sem við óskum.
Aðalskipulagið sýnir stefnu um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál Hafnarfjarðar næstu 20 árin. Það sýnir hvernig byggðinni er ætlað að þróast og veitir upplýsingar fyrir þá sem hyggja á búsetu eða framkvæmdir um hvaða möguleikar eru fyrir hendi og hverjir kosti sveitarfélagsins eru. Aðalskipulagið stuðlar að skynsamlegri og hagkvæmri nýtingu lands og landgæða, varðveislu náttúru og menningarverðmæta og vinnur gegn umhverfisspjöllum og ofnýtingu, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Fagurfræði, umhverfismál, efnahagslegir og félagslegir þættir eru þar að leiðarljósi.
Mikilvægt er að aðalskipulagið sé auðlesið og aðgengilegt til að auðvelda aðgang að upplýsingum varðandi landgæði, lóðaframboð, þjónustukerfi o.fl. Greinargerðin lýsir forsendum, stefnumörkun og áætlaðri uppbyggingu, en aðalskipulagsuppdrátturinn sýnir landnotkun einstakra svæða.
Aðalskipulaginu er einnig ætlað að tryggja réttaröryggi í meðferð skipulags- og byggingarmála þannig að réttur einstaklinga og lögaðila sé tryggður, þótt hagur heildarinnar sé hafður að leiðarljósi. Með skipulagi eru réttindi og kvaðir skilgreind til að forðast hagsmunaárekstra.
Aðalskipulagið er einnig grundvöllur fyrir ýmis samskipti ríkis og sveitarfélaga og liggur til grundvallar fyrir ýmsa grunngerð, svo sem vegaframkvæmdir, veitur og stofnanir, og með skipulagi er tryggður faglegur undirbúningur mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með því að kröfum um öryggi, endingu, útlit og hagkvæmni bygginga og annarra mannvirkja sé fullnægt.
Mikilvægt er að aðalskipulagið byggist á samstöðu og góðri kynningu meðal almennings og fyrirtækja, og að ákvarðanir séu teknar í víðtæku samhengi til að tryggja að markmið þess náist. Aðalskipulag þarf að hafa vissan sveigjanleika, og ber fyrst og fremst að líta á það sem ramma fyrir allar framkvæmdir miðað við gildandi forsendur. Þegar þær forsendur breytast verður að laga aðalskipulagið að þeim.
Greinargerð:
Word skjal- 4 Mb
PDF - 6 Mb
Skipulagsuppdrátturinn ( PDF 7 Mb )
Aðalskipulagsuppdráttur 2 (Krýsuvík)
Greinargerð Krýsuvík ( PDF 4 Mb )
Umhverfismat
Umhverfi og útivist
Námurekstur í landi Hafnarfjarðar