SMT

SMT-skólafærni (hafnfirsk útfærsla á bandarísku aðferðinni Postive Behavior Support / PBS) er innleitt í skólasamfélagið til að fyrirbyggja, draga úr og stöðva hegðunarfrávik og þar með skapa jákvætt andrúmsloft. Um er að ræða hliðstæða aðferð og PMT, sem grundvölluð er á sömu hugmyndafræði. Ólíkum hópum nemenda er mætt með samræmdum viðbrögðum alls starfsfólks þar sem áhersla er á að gefa jákvæðri hegðun gaum og almennt nálgast nemendur með jákvæðum hætti. Gera má ráð fyrir þremur til fimm árum til að innleiða SMT-skólafærni.
SMT-skólafærni

Þjónustueiningin PMT-FORELDRAFÆRNI stendur fyrir framkvæmd SMT-skólafærni, í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar og hófst vinnan veturinn 2002-2003.
SMT skólar

Starfsfólk leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar getur óskað eftir styttri PMT fræðslu. Einstaka starfsmenn geta einnig sótt grunnmenntun í aðferðum PMT og miðlað áfram til samstarfsfólks. Stefnt er að því að PMT þekking verði til staðar í sem flestum leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar á næstu árum.

Hér má nálgast efni sem SMT skólar geta nýtt sér:
Efni fyrir SMT skóla





 





Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar | PMT-FORELDRAFÆRNI  | PMT@hafnarfjordur.is 
Strandgötu 31 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5800 | Bréfsími 585 5809