PMT stendur fyrir „Parent Management Training“ og er aðferð fyrir foreldra – einkum foreldra barna með hegðunarerfiðleika. Aðferðin er þróuð af Dr. Gerald Patterson, Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólki á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Learning Center (OSLC) í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum. PMT hentar foreldrum barna á leik- og grunnskólaaldri og byggir á áratuga rannsóknum, sem sýna góðan árangur. Bestur árangur næst ef unnið er með vandann á fyrstu stigum þróunar. Patterson birti fyrstu niðurstöður rannsókna á árangri PMT meðferðar í kringum 1960 en frá þeim tíma hefur þróun staðið yfir. Rannsóknir á árangri meðferðarinnar eru virtar víða um heim og uppfylla öll ströngustu skilyrði hegðunarmælinga. Þær hafa leitt í ljós að í um 70% tilvika dregur PMT verulega úr hegðunarerfiðleikum barns á heimili og hefur auk þess jákvæð áhrif á samskipti innan fjölskyldu og frammistöðu barns í námi. Alvarlegir hegðunarerfiðleikar geta leitt til andfélagslegrar hegðunar, sem oft hefur í för með sér áfengis- og vímuefnanotkun samhliða afbrotum.

AÐFERÐIN
byggir á vel rannsakaðri kenningu Gerald Pattersons  „Social Interaction Theory“  (félagsmótunar- og félagsnámskenningu) um þróun andfélagslegrar hegðunar. Gengið er út frá því að barnið læri hegðun í gegnum tengsl sín við aðra. Líffræðilegt upplag barnsins getur gert það að verkum að það er sérlega krefjandi fyrir uppalendur sína. Þessi börn eru líklegri til að mæta neikvæðum viðbrögðum eða uppgjöf frá foreldrum og öðrum í umhverfinu. Auk þess eru streituþættir oft til staðar í umhverfi barnsins, svo sem veikindi, skilnaðir eða fjárhagsáhyggjur, sem minnka enn frekar líkurnar á því að foreldrar bregðist með viðeigandi hætti við krefjandi barni. Þannig getur myndast verulegur vítahringur í samskiptum og haft í för með sér alvarlega hegðunarerfiðleika hjá börnum.

Þar sem foreldrar eru mikilvægustu kennarar barna sinna er áhersla lögð á ítarlega vinnu með þeim og gert ráð fyrir sveigjanleika til að mæta þörfum hverrar fjölskyldu. Foreldrar fá aðstoð við að rjúfa þann vítahring sem hefur myndast með því að tileinka sér nýjar leiðir í uppeldi. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðri hegðun barnsins og draga úr hegðunarvanda. Í raun er um að ræða ákveðin verkfæri sem eru: Fyrirmæli og jákvæð samskipti við barnið, notkun hvatningar við kennslu nýrrar hegðunar, að setja mörk til að draga úr og stöðva óæskilega hegðun, lausn vanda og uppbyggilegar aðferðir í samskiptum innan fjölskyldu, eftirlit með hegðun barns innan og utan heimilis, tengsl við skólakerfið og stjórn neikvæðra tilfinninga.

FYRIRMÆLI–HVATNING–MÖRK–LAUSNALEIT-EFTIRLIT-TENGSL VIÐ SKÓLA-TILFINNINGASTJÓRN

PMT meðferðaraðilar á Íslandi

PMT í Oregon - OSLC
PMT í Noregi - Atferdssenteret
PMT í Danmörku

...




Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar | PMT-FORELDRAFÆRNI  | PMT@hafnarfjordur.is 
Strandgötu 31 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5800 | Bréfsími 585 5809