Bandarískar rannsóknir á árangri PMT meðferðar eru virtar víða um heim og uppfylla öll ströngustu skilyrði hegðunarmælinga. Þær hafa leitt í ljós að í um 70% tilvika dregur PMT meðferð verulega úr hegðunarerfiðleikum barns á heimili og hefur auk þess jákvæð áhrif á samskipti innan fjölskyldu og frammistöðu barns í námi. Niðurstöður norskra rannsókna munu liggja fyrir á næstunni. Rannsókn á árangri PMT meðferðar er hafin á Íslandi. Hér að neðan er að finna upplýsingar fyrir tilvísendur og foreldra ásamt beiðnablaði um þátttöku í rannsókn.
Efni fyrir tilvísendur rannsóknarinnar:
|
Verktól
|
Árangursmælingar eru framkvæmdar reglulega á skólaverkefninu Jákvæður stuðningur við hegðun nemenda. Fyrstu niðurstöður leiða í ljós að almennt nálgast starfsfólk nemendur með jákvæðari hætti og þær benda einnig til þess að verulega dragi úr skráðum hegðunarfrávikum nemenda.