PMT stendur fyrir „Parent Management Training“, sem er aðferð fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi. PMT stuðlar að góðri aðlögun barna og er því afar mikilvæg aðferð ef börn sýna hegðunarfrávik. PMT er þróað af Dr. Gerald Patterson, Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólki á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Learning Center (OSLC) í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum. PMT byggir á sterkum grunni rannsókna sem sýna að aðferðin dregur verulega úr hegðunarerfiðleikum barna og unglinga og skilar mestum árangri ef unnt er að grípa snemma inn í og vinna með vandann á fyrstu stigum.
PMT-FORELDRAFÆRNI er þjónustueining á fræðslusviði Hafnarfjarðar í samstarfi við Félagsþjónustu og Heilsugæslu í Hafnarfirði. Þjónusta PMT-FORELDRAFÆRNI felst í eftirtöldum þáttum: PMT meðferð, PMT ráðgjöf eins og foreldranámskeiðum, PMT fagmenntun, fræðslu fyrir starfsfólk skóla, gerð fræðsluefnis fyrir foreldra og fagfólk og árangursmælingum.
PMT fagþekking er til staðar á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, á Félagsþjónustu Hafnarfjarðar, á Heilsugæslustöðinni Sólvangi, í mörgum leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar og á ýmsum stofnunum utan Hafnarfjarðar.
Information about PMT-FORELDRAFAERNI
Staðsetning: Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar, Strandgötu 31, 220 Hafnarfjörður
Vefpóstur: PMT@hafnarfjordur.is
Sími:585 5800
Sjá nánar Starfsmenn
PMT meðferðaraðilar á Íslandi