Íbúagáttin Vefveitan Skipulag Leikskólar Grunnskólar Sundlaugar


NÁGRANNAVARSLA

Nágrannavarsla er að færast í aukana á höfuðborgarsvæðinu og hefur það sýnt sig að þar sem er virk nágrannavarsla fækkar innbrotum, skemmdarverkum og veggjakroti. Íbúar fylgjast betur með nærumhverfi sínu og sjá sér allir hag í þeirri samvinnu sem nágrannavarsla felur í sér. Hér er um grasrótarstarf íbúa að ræða en þegar að innleiðingu kemur þá þarf að sækja um uppsetningu nágrannavörsluskiltis hjá Hafnarfjarðarbæ. Ef áhugasamur íbúi vill innleiða nágrannavörslu þá getur hann sótt tillögu að kynningarbréfi hér að neðan.

 
Í  upphafi verkefnisins þurfa íbúar að skrá sig á þátttökulista og velja hópstjóra. Til að um virka nágrannavörslu sé að ræða þurfa að lágmarki 70% íbúa svæðis/götu/stigagangs að taka þátt. Hópstjóri tilkynnir nágrannavörslu til þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar og sækir  um uppsetningu nágrannavörsluskiltis. Jafnframt  skilar hópstjóri inn þátttökulista. Eftir samþykkt umsóknar þá verður haft samband við hópstjóra og honum veittar upplýsingar um það hvernig skilti þarf að kaupa (staðlað skilti) og sér bærinn um uppsetningu skiltisins.
 
Ef hópstjóri hættir þá tilkynnir hann til Hafnarfjarðarbæjar hver taki við hans hlutverki sem hópstjóri.
 
Hér að neðan er hægt að nálgast drög að kynningarbréfi til íbúa sem áhugasamir íbúar geta notað til að kynna og innleiða nágrannavörslu í sínu hverfi. Jafnframt er þátttökulisti sem hægt er að prenta út. Umsókn er hins vegar að finna á íbúagátt Hafnarfjarðar.

Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar í síma 585 5500 eða í tölvupósti, tjonustuver@hafnarfjordur.is

Drög að kynningarbréfi 

Þátttakendalisti 

 
 
Gagnlegar slóðir þar sem fjallað er um nágrannavörslu:
 
Lögregluvefurinn – nágrannavarsla
Sjóvá
VÍS