Opið fræðsluerindi fyrir foreldra á Alþjóðlega netöyggisdeginum
Þriðjudaginn 11. febrúar er Alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Af því tilefni stendur Fjölmiðlanefnd fyrir opnum foreldrafundi í beinu streymi frá kl. 12-13. Foreldrafundurinn ber yfirskriftina „Hjálpaðu mér upp, mér finnst ég vera að drukkna!“
- Finnst þér þú vera að drukkna í upplýsingaflóði á netinu?
- Hvað er hægt að gera?
- Félagslegt netöryggi – hvað er það?
- Er upplýsingaóreiða og skautun vandamál á Íslandi?
- Hvernig tölum við um þessi mál við börnin okkar?
Ekki þarf að skrá sig til fundarins – bara mæta til fundar á netinu.
