Við úthlutun styrkja er stuðst við samþykkt um styrki til húsverndar sem samþykkt var í Þjónustu- og þróunarráði 3. nóvember 2004. Nánari upplýsingar veitir Karl Rúnar Þórsson sagnfræðingur á Byggðasafni Hafnarfjarðar, sími 585 5782.
Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en 20.febrúar 2009 í Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6. Merkt HÚSVERNDARSTYRKUR
Umsóknareyðublöð eru hér.
Til að umsókn sé gild þurfa eftirfarandi gögn og upplýsingar að fylgja rafrænni umsókn:
1. Lýsing á framkvæmdum og kostnaðaráætlun
2. Ljósmynd af núverandi útliti húss
3. Undirskrift allra eigenda húseignar
Þjónustuver Hafnarfjarðar Standgötu 6, veitir fúslega aðstoð við að senda rafræna umsókn.
1. gr.
Styrkir eru árlega veittir af Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar til endurgerðar eða viðgerða á húsnæði eða öðrum mannvirkjum sem sérstakt varðveislugildi hafa af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum, enda séu framkvæmdir í samræmi við upprunalegan byggingarstíl húss og sjónarmið húsverndar.
2. gr.
Ráðstöfunarfé til húsverndar er árlega varið úr Bæjarsjóði Hafnarfjarðar og skal því úthlutað í samræmi við: „Samþykkt um styrki til húsverndar í Hafnarfirði.“
3. gr.
Menningar- og ferðamálanefnd metur til hvaða húseigna og hvaða framkvæmda styrkir skulu ná. Úrvinnsla umsókna er unninn af Byggðasafni Hafnarfjarðar í samstarfi við arkitekt frá bæjarskipulagi Hafnarfjarðarbæjar. Æskilegt er að leitað sé sérfræðiálits Húsafriðunarnefndar ríkisins.
4. gr.
Markmið styrkveitingar er að stuðla að varðveislu byggingararfsins með eftirfarandi hætti:
-með framlögum til viðgerða og endurbyggingar eldri húsa sem teljast hafa varðveislugildi
-með sérstökum viðurkenningum til þeirra sem gert hafa sérstakt átak í þessum efnum.
Áhersla skal lögð á að styrkja framkvæmdir sem færa ytra byrði húsa s.s. glugga og klæðningu til upprunalegs horfs. Umsóknir vegna framkvæmda sem telja má til eðlilegs viðhalds teljast að jafnaði ekki styrkhæfar.
5. gr.
Styrkumsóknir skulu berast Menningar- og ferðamálanefnd fyrir 15. febrúar ár hvert, á þar tilgerðu umsóknareyðublaði. Styrkumsókn skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um áætlaðar framkvæmdir og kostnað. Jafnframt skal umsókninni fylgja ljósmynd til nánari skýringar. Heimilt er að fara fram á að teikningar eða önnur tiltekin gögn fylgi styrkumsóknum. Umsóknir skulu afgreiddar fyrir lok mars ár hvert.
Ef fleiri en einn eigandi eru að húseign sem sótt er um framlag til skulu eigendur sækja sameiginlega um fyrirgreiðslu.
6. gr.
Styrkur skal ekki greiddur út fyrr en tryggt er að þær framkvæmdir sem styrkur hefur verið veittur til hafi sannarlega verið hafnar. Unnið hafi verið samkvæmt skilurðum um fagleg vinnubrögð svo sem að endurgerð mikilvægra byggingarhluta t.d. glugga og ytra byrðis sé rétt og í samræmi við aldur og gerð húss.
7. gr.
Hafi styrkur ekki verið sóttur áður en samþykkt um úthlutun næsta árs liggur fyrir, fellur hann sjálfkrafa niður.
8. gr.
Menningar- og ferðamálanefnd getur veitt húsverndarviðurkenningar þegar sérstök ástæða þykir til, sbr. 4. gr. og getur þar óskað eftir tillögum og umsögnum fagaðila.
Samþykkt í Þjónustu- og þróunarráði þann 3. nóvember 2004.