Útivist og náttúra

Hafnarfjörður er fallegur bær frá náttúrunnar hendi. Bærinn er byggður í skeifu fyrir botni fjarðarins en í gegnum bæinn rennur Hamarskotslækur til sjávar.

Landslag við Hafnarfjörð mótast af því að svæðið er við jaðar hins virka gosbeltis sem liggur um Reykjanesskaga og teygir sig norður í Langjökul. Einkennandi eru úfin kargahraun sem runnið hafa til sjávar og mynda grunn undir stórum hluta bæjarins og eru hans helsta einkenni. Upp úr hraunflákunum standa stakstæð fell sem eru áberandi kennileiti og má þar nefna Helgafell, Valahnjúka og Ásfjall, sem stendur næst byggðinni. Landslag er í heild fjölbreytilegt og í því finnast sérstæð náttúrufyrirbrigði.

Útivistarsvæði eru fjölbreytt að gerð þannig að allir geta fundið vettvang til útivistar við sitt hæfi. 

Óspillta náttúru Hafnarfjarðar hefur ótvírætt gildi fyrir núverandi og komandi kynslóðir. Hana ber að vernda til að íbúar fái notið hennar og nýtt til útivistar og fræðslu. Markvisst er unnið að því að auka virðingu fyrir náttúru og umhverfi, til hagsbóta fyrir náttúruna, bæjarfélagið og íbúa.

Hafnarfjörður á aðilda að Reykjanesfólkvangi  sem stofnaður var 1975.Mikið er um jarðhitasvæði og margskonar náttúruminjar innan fólkvangsins. Eldfjöll eru mörg, einkum lágar hraundyngjur og gossprungur. Móbergsfjöll og stapar í óteljandi myndum er einkennandi fyrir landslag á svæðinu.

Fjöldi gönguleiða er um svæðið. Kort og nánari upplýsingar er að finna í Þjónustuveri, Strandgötu 6.

Hér er hægt að nálgast gönguleiðir á vef Hafnarfjarðar